Um Málverk.is

Myndlist sem allir geta keypt og selt

Málverk.is er ókeypis myndlistartorg. Hver sem er getur stofnað aðgang, sett inn verk og keypt af öðrum, hvort sem þú málaðir verkið sjálf/ur, erfðir það eða ert að grisja safnið.

Hlutverk okkar

Við trúum því að myndlist eigi heima á veggjum fólks, ekki bara í geymslum og galleríum. Markmið okkar er að lækka þröskuldinn, bæði fyrir þá sem vilja selja verk og fyrir kaupendur sem leita að réttu verki fyrir heimilið sitt.

100%

Ókeypis fyrir notendur

6

Flokkar myndlistar

0 kr.

Sölugjald

Það sem við stöndum fyrir

Fyrir alla seljendur

Einn aðgangur til að kaupa og selja. Einfalt að setja inn verk, ná til kaupenda og halda utan um sölur.

Máta á vegg

Sjáðu verkið í réttri stærð á þínum eigin vegg áður en þú kaupir, með mynd úr símanum þínum.

Bein samskipti

Sendu skilaboð og gerðu tilboð beint við seljanda. Engin flókin milliliðaþjónusta.

Öryggi og traust

Seljendur koma fram undir réttu nafni, gagnsæ verð og persónuvernd í fyrirrúmi.

Hvernig það virkar

01

Skoðaðu

Flettu í gegnum málverk, vatnslitamyndir, grafík og fleira frá seljendum á vefnum.

02

Mátaðu

Notaðu „máta á vegg“ til að sjá verkið í réttri stærð heima hjá þér.

03

Hafðu samband

Sendu skilaboð eða gerðu tilboð beint við seljanda í gegnum vefinn.

04

Eignastu verkið

Klárið kaupin ykkar á milli og njóttu nýja verksins á veggnum.

Tilbúin að byrja?

Skoðaðu verkin sem eru til sölu eða settu þín eigin verk inn, það er ókeypis.