Hvernig á að hugsa um málverk?
Uppfært
Með einfaldri umhirðu getur málverk haldið litum sínum og ástandi í áratugi. Hér eru helstu atriðin.
Birta
Bein sól er helsti óvinur flestra listaverka og getur upplitað liti. Verk á pappír, eins og vatnslitamyndir og grafík, eru sérstaklega viðkvæm.
Raki og hiti
Forðastu að hengja verk í baðherbergjum, beint fyrir ofan ofna eða við útidyr þar sem hita- og rakasveiflur eru miklar. Jafnt hitastig og hóflegur raki fara best með verkin.
Þrif
Þurrkaðu ryk varlega af með mjúkum, þurrum bursta. Ekki nota vatn, hreinsiefni eða rakan klút á málaðan flöt. Ef verkið er skemmt eða mjög óhreint er best að leita til forvarðar.
Flutningur og geymsla
Verndaðu málaðan flöt með sýrufríum pappír eða plasti sem snertir ekki litinn beint, og verndaðu horn sérstaklega. Geymdu verk upprétt, ekki flöt með þunga ofan á.