Hvernig á að velja málverk fyrir stofuna?
Uppfært
Gott málverk getur breytt heilu rými. Áður en þú velur verk borgar sig að hugsa um stærð veggjarins, birtuna og hvernig verkið talar við húsgögnin í kring.
Byrjaðu á veggnum, ekki verkinu
Mældu vegginn og húsgagnið sem verkið á að hanga yfir. Algeng viðmiðun er að verk fyrir ofan sófa eða skenk sé um tveir þriðju af breidd húsgagnsins. Of lítið verk á stórum vegg virðist oft týnt.
Ef veggurinn er mjög stór getur annaðhvort eitt stórt verk eða nokkur minni verk saman í myndavegg komið vel út.
Hæðin skiptir máli
Miðja verksins er oft höfð í um 145–155 cm hæð frá gólfi, sem er nálægt augnhæð flestra. Yfir sófa er gott að hafa um 15–25 cm bil frá sófabaki að neðri brún verksins.
Litir og stemning
Verk þarf ekki að passa nákvæmlega við púðana. Oft virkar best að velja verk sem tekur upp einn eða tvo liti úr rýminu, eða verk sem myndar meðvitaða andstæðu við hlutlaust umhverfi.
Hugsaðu um hvernig þér líður í rýminu. Rólegt landslag gefur annað andrúmsloft en sterkt abstraktverk.
Birta og staðsetning
Forðastu að hengja verk þar sem bein sól skín á það stóran hluta dagsins, sérstaklega vatnslitamyndir og verk á pappír. Bein sól getur upplitað liti með tímanum.
Á Málverk.is geturðu notað „Máta á vegg hjá mér“ á síðu verksins til að sjá það í réttri stærð á þínum eigin vegg.